Innskráning í Karellen
news

Kaffihúsastemning í Barnaskólanum

19. 06. 2018


Í sumarskóla Barnaskólans í Reykjavík var mikið um að vera í gær. Börnin settu upp sitt eigið kaffihús og voru mjög dugleg. Þau útbjuggu þær veitingar sem þau langaði að kaffihúsið myndi bjóða upp á, eins og súkkulaðiköku og rice krispies kökur sem þau síðan fengu að gæða sér á. Vegna sólarveðurs var ákveðið að færa kaffihúsið utandyra og þar gátu þau unað sér í kaffihúsaleik.

Þessi mynd var tekin þegar biðröð hafði myndast við kaffihúsið og börnin fengu að velja sér það sem þeim þótti girnilegast.

© 2016 - Karellen