Innskráning í Karellen
news

​Öll saman nú, við erum vinkonur og vinir hér!

26. 02. 2018

Öll saman nú, við erum vinkonur og vinir hér!

Vináttulotan er 5.lotan í kynjanámskrá Hjallastefnunnar, með lotulyklana félagsskapur, umhyggja, nálægð og kærleikur.

Uppskeruvikan er kærleiksvika. Í þessari lotu er félagsfærni þjálfuð og æfð. Hjallastefnan gengur út frá þeirri hugmynd að öll börn búi yfir ótakmörkuðum möguleika að rækta einlægan kærleika til annarra. Þessi lota byggir því upp góðvild sem felur í sér tengslagetu og hún vinnur gegn útundan hegðun og einelti. Orðræðan okkar er - öll saman nú og við erum vinkonur/vinir hér. Vinnan í þessari lotu fer fram með því að styrkja og efla vináttu í fjölbreyttum verkefnumvinaleikjum, útskýrum hvað það er að vera vinkona eða vinur og við æfum tillitsemi og hjálpsemi. Markmið lotunnar er að skapa kærleikstengsl á milli allra barna.

© 2016 - Karellen