Innskráning í Karellen
news

7 ára börn og Erró

05. 02. 2019

Í dag fóru 7 ára börn í heimsókn á Listasafn Íslands. Þar var tekið mjög vel á móti þeim og þau skoðuðu sýningu Erros Svart og Hvítt. Á þessari sýningu gefur að líta um þrjátíu ný og nýleg svarthvít málverk eftir Erró.

Verkin, sem flest koma beint frá vinnustofu hans í París, vitna enn og aftur um sköpunarkraft og uppfinningasemi listamannsins. Í þessum verkum blandar hann leikandi saman sögulegum persónum og manga- og teiknimyndasögufígúrum.


© 2016 - Karellen