Innskráning í Karellen
news

Skólasetning Barnaskólans

19. 08. 2020

Skólasetning verður föstudaginn 21. ágúst. Vegna Covid verður ekki hefðbundin skólasetning, heldur hittist hver árgangur fyrir sig. Foreldrar 6 ára barna eru einu foreldrarnir sem við bjóðum alla leið inn í skólahúsið, en þá aðeins með grímur fyrir vitum. Skólasetning annarra kjarna verður víðsvegar á lóðinni, inni eða úti, eftir því sem hver kennari skipuleggur og tilkynnir með pósti.

Miðstig mætir klukkan 9:00 kennarar Sunna, Andri, Einar og Kristín, stuðningur Ólöf

9 ára börn klukkan 9:15 kennarar Unnur María, Björg og Casper,

8 ára börn klukkan 9: 30 kennarar eru Sara María og Konni, stuðningur Juliia

7 ára börn klukkan 9:45 kennarar eru Sigrún og Júlía Heiða, stuðningur er Bryndís

6 ára börn klukkan 10 í Norðurhúsi. Kennarar eru Járngerður og Edda Huld, stuðningur eru Hringur og Ingibjörg.

Við hlökkum til að sjá ykkur í Barnaskólanum.

© 2016 - Karellen