Innskráning í Karellen
news

​Heimsókn frá elstu börnunum á Öskju

15. 02. 2019

Elsta árganginum í Öskju var boðið á generalprufu hjá fimm ára börnum sem eru að ljúka tónlistarsmiðju. Tónlistarsmiðjan er partur af starfi Barnaskólans en hver árgangur þar fer í tónlistarsmiðju sem endar á tónleikum fyrir foreldra. Þetta eru skemmtilegir og líflegir tónleikar þar sem börnin sýna afrakstur af vinnu sinni þar sem þau hafa lært ótal mörg ný lög, spila á hljóðfæri og sýna listir sínar.

Öskjubörnin voru dolfallin og skemmtu sér mjög vel. Þau bíða spennt eftir að fá að fara í tónlistarsmiðju þegar þau byrja á fimm ára kjarna í haust.

© 2016 - Karellen