Aðalfundur foreldrafélags Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn 12. október klukkan 20.00 - 21:00.
Fundurinn verður haldin í miðrými leikskólans Öskju.
Klukkutíma fyrr, kl 19:00 - 20:00, er umræðufundur sem er opin öllum foreldrum þar sem farið verður yfir stöðu húsnæðismála BSK. Hann verður haldin í sama rými.
Dagskrá fundar foreldrafélagsins verður sem hér segir:
1. Störf síðastliðins starfstímabils kynnt.
2. Stjórnarkjör.
3. Önnur mál.
Mikil vöntun er á nýju fólki í stjórn foreldrafélagsins og við hvetjum alla foreldra og forráðamenn til að mæta og taka virkan þátt.
Við hlökkum til að sjá ykkur.
Bestu kveðjur,
Eyrún Eggertsdóttir
Formaður foreldrafélags Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík