Innskráning í Karellen
news

Heimsóknir - Slökkvilið á 5 ára kjarna

09. 04. 2024

Við fáum reglulega til okkar góða gesti með alls konar fræðslu fyrir börnin okkar. Það er alltaf jafn ánægjulegt og vel þegið. Í vikunni kom til dæmis Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins og hitti öll 5 ára börn skólans með fræðslu um brunavarnir. Þau fengu meðal annars að horfa á myndina um Loga og Glóð ásamt því að fara með slökkviliðsfólkinu út til að skoða brunabílinn sem þau mættu á. Mjög skemmtileg heimsókn og 5 ára börnin okkar með fullt af góðum og gildum spurningum.

© 2016 - Karellen