Innskráning í Karellen
news

Skólabyrjun fimm ára barna

07. 08. 2020

Í næstu viku, fimmtudaginn 13. ágúst opnar Barnaskólinn fimm ára deildina sína. Á fimm ára kjarna er unnið metnaðarfullt og gott starf. Börnin leika mikið úti og vinna skemmtileg verkefni. Kjarninn verður staðsettur í færanlegu skólastofunum á lóðinni milli Öskju og Barnaskólans. Skólinn er opinn frá kl. 7.45 til kl.16:30.

Skólafatnaður er einkennisfatnaður allra nemenda okkar og æskilegt að huga að honum í skólabyrjun. Skólaföt eru seld í gegnum netverslunina okkar http://vefverslun. hjalli.is/ þegar pöntunin berst til okkar setjum við fatnaðinn á snaga barnanna.

Þó svo að börnin séu komin inn í grunnskólaumhverfi eru þau þó ennþá leikskólabörn og fylgja þeirri námsskrá og skipulagsdögum.


© 2016 - Karellen