Innskráning í Karellen
news

Ungt listafólk tekur þátt í Barnamenningarhátíð

10. 04. 2019

Ljósmyndasýning fimm ára barna var opnuð í gær. Sýningin er staðsett í Árbæjarsafni og er haldin í samstarfi við Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Við opnunina mættu fulltrúar Árbæjarsafnsins og Ljósmyndasafns Reykjavíkur ásamt börnum, starfsfólki Barnaskólans og foreldrum fimm ára barna í skólanum. Una Björk Kjerúlf, kennari fimm ára barna hefur haldið utan um framkvæmd og undirbúning sýningarinnar. Börnin voru stolt af myndunum sínum sem voru ákaflega fallegar og listrænar. Þetta er í fyrsta skipti sem svona ung börn taka þátt og setja upp sýningu í Árbæjarsafni.

Sýningin verður opin fram á sunnudag, frá kl. 13:00 -17:00.

Til hamingju með fallegu ljósmyndasýninguna ykkar kæru fimm ára börn :)

© 2016 - Karellen